Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 13. febrúar 2018 13:30
Magnús Már Einarsson
Neymar fékk sér Meistaradeildar húðflúr
Neymar vann Meistaradeildina með Barcelona árið 2015.
Neymar vann Meistaradeildina með Barcelona árið 2015.
Mynd: Getty Images
Neymar, leikmaður PSG, er vel gíraður fyrir 16-liða úrslit Meistaradeilarinnar þar sem liðið mætir Real Madrid.

Neymar vann Meistaradeildina með Barcelona árið 2015 en þá lagði liðið Juventus 3-1 í úrslitaleik.

Brasilíumaðurinn skoraði eitt af mörkunum í úrslitaleiknum og hann er afar stoltur af titlinum.

Neymar ákvað í vikunni að fá sér húðflúr með mynd af Meistaradeildarbikarnum.

Neymar er með nokkur húðflúr fyrir og hann ákvað að bæta mynd af Meistaradeildarbikarnum við á kálfann.

Hann birti síðan mynd á Instagram sem má sjá hér að neðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner