Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 13. febrúar 2018 10:30
Magnús Már Einarsson
Select bolti í Pepsi og Inkasso-deild karla í sumar
Spilað verður með Select bolta í Pepsi-deildinni líkt og í fyrra.
Spilað verður með Select bolta í Pepsi-deildinni líkt og í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Spilað verður með Select bolta frá Altis í Pepsi-deild karla og Inkasso-deildinni í sumar.

Spilað hefur verið með Select bolta í Pepsi-deildinni undanfarin tvö ár en þar áður var spilað með Nike bolta í tvö ár. Á undan því var leikið með Adidas bolta.

Nú hefur Inkasso-deildin bæst í hópinn en Select bolti verður notaður þar í öllum leikjum í sumar. Í fyrra var ekki sami bolti á öllum völlum í Inkasso-deildinni.

„Ljóst er að samningur við Altis mun nýtast öllum aðildarfélögum ÍTF. Þannig mun sami bolti vera notaður í efstu deild og fyrstu deild í sumar. Félög hafa pantað bolta fyrir sumarið en það er Select bolti," segir á heimasíðunni hjá íslenskum toppfótbolta.


Athugasemdir
banner
banner