þri 13. febrúar 2018 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Sjáðu sjö mörk Breiðabliks gegn ÍR
Gísli Eyjólfsson skoraði þrennu gegn ÍR á laugardaginn. Mörkin má sjá í myndbandinu með fréttinni.
Gísli Eyjólfsson skoraði þrennu gegn ÍR á laugardaginn. Mörkin má sjá í myndbandinu með fréttinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik vann 7-0 sigur á ÍR í Lengjubikar karla á laugardaginn. Blikar TV var á leiknum og náði mörkunum á myndband. Þau má sjá hér í sjónvarpinu að neðan.

Þetta var fyrsti leikur liðanna í riðli 2 í Lengjubikarnum en auk þeirra eru KR, KA, Magni og Þróttur í riðlinum.

Breiðablik 7 - 0 ÍR
1-0 Arnþór Ari Atlason ('19)
2-0 Arnþór Ari Atlason ('39)
3-0 Gísli Eyjólfsson ('41)
4-0 Gísli Eyjólfsson ('46)
5-0 Viktor Örn Margeirsson ('49)
6-0 Arnór Gauti Ragnarsson ('82)
7-0 Gísli Eyjólfsson ('87)


Athugasemdir
banner
banner
banner