Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 13. febrúar 2019 19:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tuchel vildi rautt spjald á Young sem ýtti Di Maria
Mynd: Getty Images
Paul Pogba fékk að líta rauða spjaldið er Manchester United tapaði fyrir Paris Saint-Germain í Meistaradeildinni í gær. Thomas Tuchel, stjóri PSG, vildi líka sjá Ashley Young fjúka út af.

Young lét Angel Di Maria, fyrrum leikmann United, finna fyrir því er hann ýtti honum út af. Di Maria lenti illa.

Young var á gulu spjaldi þegar þetta gerðist en slapp við það seinna gula.

„Hann var heppinn. Hann veit að þetta var ekki nauðsynlegt. Hann hefur spilað á þessum velli oft og mörgum sinnum og veit að það er lítil brekka við hliðarlínuna," sagði Tuchel eftir leikinn.

„Það var óþarfi að ýta Di Maria. Ég held að þetta hafi samt ekki verið viljandi gert."

Smelltu hér til að sjá atvikið.

Di Maria fékk ekki góðar móttökur á Old Trafford í gær.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner