Manchester City og Tottenham Hotspur mætast í ensku úrvalsdeildinni í dag en leikar hefjast klukkan 17:30 á Etihad leikvangnum.
Manchester City er á svakalegu skriði á meðan gengi Tottenham hefur verið misjafnt upp á síðkastið.
Sergio Aguero, sóknarmaður City, gæti snúið aftur á völlinn í kvöld en hann hefur æft með liðinu í vikunni. Aguero hefur verið mikið meiddur á þessu tímabili og því góðar fréttir fyrir City að hann sé að snúa aftur.
Fernandinho verður ekki með í kvöld og þá eru Nathan Ake og Kevin De Bruyne báðir meiddir. Pep Guardiola, stjóri City, vonast hins vegar eftir því að Ruben Diaz og Rodri nái báðir leiknum í kvöld en þeir hafa verið tæpir.
Athugasemdir