Sagt er að brasilíski framherjinn Neymar hafi tilkynnt pabba sínum að hann vilji ganga í raðir Real Madrid fyrir HM.
Neymar verður í sviðsljósinu og leiðir sókn Brasilíu þegar HM hefst í Rússlandi þann 14. júní.
Neymar verður í sviðsljósinu og leiðir sókn Brasilíu þegar HM hefst í Rússlandi þann 14. júní.
Hann ku vilja að framtíð sín verði orðin ljós áður en mótið fer af stað.
Neymar gekk í raðir Paris Saint-Germain frá Barcelona síðasta sumar fyrir 200 milljónir punda.
Þrátt fyrir að skora 26 mörk á fyrsta tímabili sínu í París er sagt að Neymar vilji snúa aftur til Spánar. Reglulega berast fréttir af því að hann sé ekki nægilega hrifinn af lífinu í Frakklandi.
Dagblaðið Sport, sem hefur höfuðstöðvar í Barcelona, segir að Neymar hafi gefið föður sínum grænt ljós á að hefja viðræður. Neymar er sem stendur á meiðslalistanum eftir að hafa gengist undir aðgerð á ökkla í síðasta mánuði og búist er við því að hann verði frá þar til í maí.
PSG mun þó reyna að halda þessum stjörnuleikmanni og ljóst að Real Madrid þyrfti að borga ansi háa upphæð til að eiga möguleika á að landa honum.
Athugasemdir