Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 13. mars 2018 20:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meiðsli Gylfa gætu opnað dyr fyrir Klaassen
Hefur fengið fá tækifærin hjá Everton.
Hefur fengið fá tækifærin hjá Everton.
Mynd: Getty Images
Davy Klaassen var fenginn til Everton frá Ajax í sumar og voru miklar vonir bundnar við hann. Hollendingurinn hefur hins vegar aðeins byrjað þrjá leiki í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Gylfi Sigurðsson, sem einnig var fenginn til Everton í sumar, meiddist um helgina í 2-0 sigri á Brighton.

Gylfi meiddist á hné og verður líklega frá í nokkrar vikur. Enn er óvíst hversu alvarleg meiðsli Gylfa eru í raun og veru en Íslendingar liggja nú á bæn í von um að hann verði klár fyrir HM.

Stuðningsmenn Everton eru auðvitað svekktir með meiðsli Gylfa, sem hefur verið einn besti leikmaður liðsins að undanförnu. Það segir svolítið mikið um hugarfar Gylfa að hann hljóp mest af liðsfélögum sínum þrátt fyrir meiðslin.

Nú kalla stuðningsmenn Everton eftir því að Klaassen fái tækifæri í fjarveru Gylfa. Í könnun sem Liverpool Echo gerir fær Klaassen fleiri atkvæði en Wayne Rooney og Nikola Vlasic.

Meiðsli Gylfa gætu reynst heppileg fyrir Klaassen, þ.e.a.s. ef Sam Allardyce ákveður að veita honum tækifæri.







Athugasemdir
banner
banner
banner