Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mið 13. mars 2019 22:33
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Bayern og Liverpool: Mane bestur
Mynd: Getty Images
Liverpool er komið í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir glæsilegan 1-3 sigur gegn Bayern München fyrr í kvöld.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn og staðan 1-1 í leikhlé en Liverpool var betri aðilinn í síðari hálfleik og verðskuldaði sigurinn að lokum.

Sadio Mane skoraði tvennu í leiknum og var valinn maður leiksins af Sky Sports. Virgil van Dijk er sá eini sem fær jafnháa einkunn og Mane, þeir eru báðir með 8.

Aðeins þrír leikmenn Bayern fá 6 í einkunn en restin af liðinu fær 5 fyrir sinn þátt. Enginn byrjunarliðsmaður hjá Liverpool fékk undir 6 nema Jordan Henderson sem var skipt af velli í fyrri hálfleik vegna meiðsla.

FC Bayern: Neuer (5), Rafinha (5), Sule (5), Hummels (5), Alaba (6), Thiago (5), Martinez (6), Ribery (5), Rodriguez (5), Gnabry (6), Lewandowski (5)
Varamenn: Coman (5), Goretzka (5), Sanches (5)

Liverpool: Alisson (6), Alexander-Arnold (7), Matip (7), Van Dijk (8), Robertson (7), Milner (7), Wijnaldum (7), Henderson (5), Mane (8), Firmino (6), Salah (6)
Varamenn: Fabinho (7), Lallana (5), Origi (5)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner