Bayern München er að spila við Liverpool í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar þessa stundina.
Hinn 35 ára gamli Franck Ribery, sem verður 36 ára í apríl, er í byrjunarliði Bayern og skartar nýrri hárgreiðslu sem hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum.
Ribery er þar búinn að láta raka töluna 7 í hárið á sér enda ber hann treyjunúmerið 7 hjá Bayern og hefur gert í mörg ár.
Grín hefur verið gert af þessari ákvörðun hans bæði sökum aldurs og sökum þess að hann hefur staðið í skugga Cristiano Ronaldo í langan tíma. Hann sagðist nýverið eiga enn eftir að jafna sig á því að hafa ekki unnið Gullknöttinn 2013.
Cracking tribute to the GOAT there from Ribery #BAYLIV #CR7 pic.twitter.com/Ao3JDgJGrp
— ⚽️442oons⚽️ (@442oons) March 13, 2019
Barber: You sure about this? You know you’re a grown man right?
— ODDSbible (@ODDSbible) March 13, 2019
Ribery: Trust me, it’ll look sick
Barber: Alright then... say no more pic.twitter.com/IamXMCsH4T
Ribery goes down just outside the box, the referee waves play on after spotting a number 7 shaved into the side of his head. #BAYLIV
— Paddy Power (@paddypower) March 13, 2019
Athugasemdir