Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 13. mars 2019 22:40
Ívan Guðjón Baldursson
Henderson sneri sig á ökkla
Mynd: Getty Images
Jordan Henderson þurfti að koma af velli í fyrri hálfleik er Liverpool lagði FC Bayern að velli í München fyrr í kvöld.

Henderson kom snemma af velli og tók Fabinho sér stöðu hans á miðjunni. Jürgen Klopp segir Henderson hafa snúið sig á ökkla og ættu meiðslin því ekki að vera alvarleg.

Allar líkur eru á því að hann missi af næsta leik Liverpool gegn Fulham á sunnudaginn en þeim leik fylgir landsleikjahlé sem kemur sér afar vel fyrir Klopp.

„Jordan Henderson sneri sig á ökkla, við vonum að þetta sé ekki alvarlegt. Það er aldrei þægilegt að þurfa að nota skiptingu í fyrri hálfleik," sagði Klopp að leikslokum. James Milner fylgdi á eftir honum.

„Þetta segir mikið til um hópinn sem við erum með. Það var mjög erfitt að missa fyrirliðann útaf svona snemma en við höndluðum þetta. Fabinho kom inn, stóð sig vel og svo komumst við yfir," sagði Milner sem tók við bandinu þegar Henderson fór útaf.
Athugasemdir
banner
banner
banner