Arsenal hafði betur gegn Manchester United í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Leiknum lauk með 2-0 sigri Arsenal en Granit Xhaka og Pierre Emerick Aubameyang skoruðu mörk liðsins.
Liðin mættust í FA-bikarnum í janúar þar sem að Manchester United hafði betur, 1-3.
Englendingurinn Jesse Lingard skoraði eitt marka Manchester United í þeim leik og fagnaði með því að gera "moonwalk" fyrir framan stuðningsmenn Arsenal.
Eftir leikinn setti Lingard myndina á Instagram sem fór ekkert sérstaklega vel í stuðningsmenn Arsenal
„Það er alltaf pirrandi þegar þú sérð mótherjann fagna mörkum á þínum eigin heimavelli, sérstaklega eins og Lingard gerði það. Við vorum staðráðnir í því að leyfa þessu ekki að gerast aftur," sagði Bernd Leno, markvörður Arsenal, eftir sigurleikinn á sunnudag.
„Þetta fagn er svona eitt af því sem maður gleymir ekki og við tókum það ekki í mál að gefa þeim færi á þessu aftur."
Jesse Lingard hefur verið að glíma við meiðsli og spilaði því ekki með Manchester United um síðustu helgi gegn Arsenal.
Athugasemdir