Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. mars 2019 17:30
Elvar Geir Magnússon
Sterling að þróast út í að vera frábær fyrirmynd
Raheem Sterling hefur átt rosalega öflugt tímabil.
Raheem Sterling hefur átt rosalega öflugt tímabil.
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, hrósaði Raheem Sterling í hástert á fréttamannafundi í dag.

Sterling hefur verið geggjaður með Manchester City í vetur.

„Hann er að eiga annað magnað tímabil. Hann hefur sigrast á öllum áskorunum og ég er svo hrifinn af því hversu þroskaður hann er. Hann er að sýna góðar mannlegar hliðar," segir Southgate.

Sterling hefur vakið máls á mikilvægi baráttunnar gegn kynþáttafordómum.

„Ég er svo hrifinn af því hversu heilsteyptur hann er orðinn og hvernig hann hefur tjáð sig um mikilvæg málefni. Hann hefur sýnt hugrekki með því að gera það. Hann er með sterka samfélagslega ábyrgð og er að þróast út í að vera frábær fyrirmynd fyrir fólk að fylgja."
Athugasemdir
banner
banner
banner