Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. mars 2020 09:09
Magnús Már Einarsson
Hudson-Odoi: Ég er búinn að jafna mig af veirunni
Mynd: Getty Images
Callum Hudson-Odoi birti í dag myndband á samfélagsmiðlum þar sem hann segist vera búinn að jafna sig eftir að hafa fengið kórónuveiruna.

Chelsea greindi frá því í yfirlýsingu í nótt að Hudson-Odoi hefði greinst með veiruna.

„Ég hef verið með veiruna undanfarna daga og er búinn að jafna mig af henni," sagði Hudson-Odoi.

„Ég hef fylgt leiðbeiningum og verð áfram í sóttkví í viku. Ég vonast til að sjá alla fljótlega og vonandi kemst ég fljótlega aftur út á völlinn."

Allir þeir sem hafa komið nálægt Hudson-Odoi á æfingasvæði Chelsea undanfarna daga eru komnir í sjálfskipaða sóttkví. Um er að ræða leikmannahóp Chelsea, þjálfaralið og starfsmenn.

Enska úrvalsdeildin fundar klukkan 10:30 í dag og þar er líklegt að tímabilinu verði frestað.

Athugasemdir
banner
banner
banner