Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. mars 2020 18:35
Ívan Guðjón Baldursson
Liðslæknir Samp með veiruna - Ekdal og Thorsby sýktir
Mynd: Getty Images
Manolo Gabbiadini, sóknarmaður Sampdoria, var greindur með kórónaveiruna fyrr í vikunni og nú hafa fjórir aðrir leikmenn liðsins bæst við.

Leikmennirnir (Omar Colley, Albin Ekdal, Morten Thorsby og Antonino La Gumina) eru heima hjá sér og líður vel. Þá er liðslæknirinn Amedeo Baldari einnig sýktur.

Allir leikmenn og starfsmenn félagsins verða í sjálfseinangrun heima hjá sér næstu vikurnar.

Dusan Vlahovic, sóknarmaður Fiorentina, hefur þá einnig greinst með veiruna.

Ítalski boltinn er kominn í pásu þar til í apríl í fyrsta lagi.
Athugasemdir
banner
banner
banner