Arnar Sveinn Geirsson, forseti Leikmannasamtaka Íslands, sagði skemmtilega sögu í nýjasta þætti Draumaliðsins.
Draumaliðið er hlaðvarp sem Jóhann Skúli Jónsson stjórnar.
Draumaliðið er hlaðvarp sem Jóhann Skúli Jónsson stjórnar.
Arnar Sveinn var gestur í nýjasta þættinum og hann fór þar yfir feril sinn og valdi 11 manna draumalið. Hann sagði einnig skemmtilega sögu af Sigurbirni Hreiðarssyni, fyrrum fyrirliði Vals og núverandi þjálfara Grindavíkur.
„Þegar ég mun líta yfir árin mín í fótbolta þá er Bjössi sá allra ruglaðasti og allra skemmtilegasti," sagði Arnar.
„Sögurnar af honum eru endalausar. Hann er alltaf til í grínið en samt á samt á sama tíma - þegar það þurfti - var hann grjótharður og sagði mönnum til."
„Maður kemur upp í meistaraflokk og það vita allir hver Bjössi Hreiðars er, goðsögn í Val. Maður fann það."
„Það eru margar sögur af honum. Það er ein sagan, áður en ég kem þarna upp, ég man ekki hver var að þjálfa en þetta hefur verið í kringum aldamótin. Þeir voru að fara í æfingaferð og svo eru þeir að fara að pakka heim í töskur og allt þetta. Þjálfarinn - ég man ekki hver það var - var búinn að pakka og fer eitthvað niður á hótelinu. Bjössi var búinn að plana að rugla í honum. Hann opnar töskuna hans og laumar þar nokkrum blöðum, klámblöðum sem eru ætluð samkynhneigðum mönnum."
„Hann bætir um betur og hringir á undan sér í Leifsstöð. Það er nafnlaus ábending um að það þurfi að kanna einn sem er að koma. Þessi þjálfari var þjóðþekktur einstaklingur, það var ekki að fara fram hjá neinum þegar hann var að labba í gegn."
„Þetta var á þeim tíma þegar þú varst tekinn í tékk í tollinum að það var fyrir allra augum, þú fórst ekki inn í eitthvað herbergi. Bjössi gengur rétt á eftir þeim. Þjálfarinn er spurður hvort hann hafi ekki pakkað sjálfur og hann svarar því játandi. Taskan er opnuð og þar blasa þessi blöð við. Þetta var tekið fyrir á æfingu daginn eftir og mönnum gefinn kostur á að stíga fram og viðurkenna þetta. Það gerði það enginn," sagði Arnar og bætti við:
„Þetta lýsir Bjössa vel. Fáránlega skemmtilegur gæi en þvílíkur liðsmaður og þvílíkur liðsfélagi. Hann myndi gera alllt fyrir þig og allt fyrir Val. Það er mikill heiður að hafa fengið að spila með honum."
📢📢📢
— Jói Skúli (@joiskuli10) March 9, 2021
Forsetinn, @arnarsveinn, hefur sterkar skoðanir á öllu, ÖLLU. Tandurhrein íslenska um ferilinn, baráttu Willums og Óskars Bjarna um hann, klámblöð í Leifsstöð, of seint rebrand og Martin Pedersen dansandi upp á borðum á Enska.https://t.co/BlBcnjc43T
Athugasemdir