Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   lau 13. mars 2021 11:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Leeds og Chelsea: Tuchel skiptir út rúmlega hálfu liðinu
Mount og Ziyech byrja
Mount og Ziyech byrja
Mynd: Getty Images
Leeds tekur á móti Chelsea á Elland Road í fyrsta leik dagsins í ensk úrvalsdeildinni. Leikurinn hefst klukkan 12:30 og er í beinni útsendingu á Síminn Sport.

Chelsea er í 4. sæti deildarinnar og Leeds í 11. sæti, með fimmtán stigum minna. Chelsea þarf á stigunum að halda í Meistaradeildarbaráttu á meðan Leeds siglir lygnan sjó, hæpið að liðið nái Evrópusæti og níu stig eru niður í fallsæti. Fyrri leikur liðanna endaði með 3-1 sigri Chelsea á heimavelli í desember.

Leeds hefur tapað fjórum af síðustu fimm leikjum sínum. Marcelo Bielsa, stjóri liðsins, gerir þrjár breytingar frá 2-0 tapinu gegn West Ham í síðustu umferð. Liam Cooper er ekki í leikmannahópnum. Inn í liðið koma þeir Pascal Struijk, Jack Harrison og Ezgjan Alioski.

Chelsea er taplaust í öllum keppnum undir stjórn Thomas Tuchel sem tók við liðinu seint í janúar síðan hafa átta leikir unnist og liðið gert þrjú jafntefli í ellefu leikjum í öllum keppnum. Tuchel gerir sex breytingar frá 2-0 sigrinum gegn Everton síðasta mánudag. Inn í liðið koma þeir Antonio Rudiger, Ben Chilwell, Christian Pulisic, N'golo Kante, Mason Mount og Hakim Ziyech.

Byrjunarlið Leeds: Meslier, Ayling, Llorente, Struijk, Dallas, Phillips, Alioski, Roberts, Harrison, Raphinha, Bamford

(Varamenn: Casilla, Koch, Berardi, Shackleton, Klich, Costa, Jenkins, Poveda, Rodrigo)

Byrjunarlið Chelsea: Mendy, Azpilicueta, Christensen, Rudiger, Jorginho, Kante, Mount, Chilwell, Pulisic, Havertz, Ziyech.

(Varamenn: Kepa, James, Zouma, Emerson, Alonso, Kovacic, Hudson-Odoi, Werner, Giroud)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner