Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. mars 2021 13:40
Ívan Guðjón Baldursson
Cancelo: Pulisic erfiðasti kantmaður sem ég spilað við
Mynd: Getty Images
Portúgalski bakvörðurinn Joao Cancelo hefur verið meðal bestu leikmanna Manchester City á tímabilinu.

Cancelo var spurður út í hver honum þætti vera erfiðasti andstæðingurinn í úrvalsdeildinni og kemur svar hans mörgum á óvart.

„Við bakverðir spjöllum stundum um þetta, hver er erfiðasti andstæðingurinn. Mitt svar kemur yfirleitt á óvart, en að mínu mati er Pulisic búinn að vera erfiðastur," sagði Cancelo við Star Sports fyrir útileik Man City gegn Fulham.

„Hann er virkilega góður á boltanum og svo er hann mjög snöggur leikmaður með snöggar hreyfingar. Hann er erfiðasti kantmaður sem ég hef spilað við."

Pulisic er ungur Bandaríkjamaður sem hefur ekki fengið mikinn spiltíma hjá Chelsea að undanförnu.
Athugasemdir
banner
banner
banner