Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. mars 2021 20:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jói Berg frábær - „Gerir svo mikið fyrir Burnley þegar hann er heill"
Mynd: Getty Images
Jóhann Berg Guðmundsson átti frábæran leik fyrir Burnley í sigri gegn Everton í dag.

Jóhann Berg hefur verið inn og út úr liði Burnley á þessu tímabili vegna meiðsla.

Hann byrjaði í dag og spilaði 66 mínútur. Á vefmiðlinum LancsLive fá leikmenn Burnley einkunn fyrir frammistöðu sína í leiknum. Jóhann Berg var með bestu leikmönnum síns liðs.

„Gerir svo mikið fyrir Burnley þegar hann er heill heilsu. Átti hörkuskot í stöngina," sagði í umsögn um Jóhann Berg.

Þetta eru frábær tíðindi fyrir Ísland þar sem Jóhann Berg er lykilmaður í íslenska landsliðinu sem leikur sína fyrstu leiki í undankeppni HM síðar í þessum mánuði.
Athugasemdir
banner
banner
banner