Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 13. mars 2021 17:05
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikar kvenna: ÍBV náði í sitt fyrsta sig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur R. 2 - 2 ÍBV
1-0 Shaelan Grace Murison Brown ('13)
1-1 Olga Sevcova ('24)
1-2 Viktorija Zaicikova ('56)
2-2 Álfhildur Rósa Kjartansdóttir ('58)

Þróttur R. tók á móti ÍBV í þriðju umferð Lengjubikars kvenna og skildu liðin með 2-2 jafntefli.

Shaelan Brown kom Þrótti yfir snemma leiks en Olga Sevcova jafnaði fyrir Eyjakonur og var staðan jöfn í leikhlé.

Viktorija Zaicikova kom ÍBV svo yfir í síðari hálfleik en það tók Álfhildi Rósu Kjartansdóttur aðeins tvær mínútur að jafna leikinn að nýju.

Meira var ekki skorað og urðu lokatölur 2-2. Þróttur náði í sitt sjöunda stig en þetta var fyrsta stig Eyjakvenna. Þróttur er því í góoðri stöðu í toppbaráttu riðilsins.
Athugasemdir
banner