Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 13. mars 2021 21:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikarinn: KA í 8-liða úrslit eftir jafntefli
Daníel skoraði fyrir KA.
Daníel skoraði fyrir KA.
Mynd: Hanna Símonardóttir
KA 1 - 1 Grindavík
1-0 Daníel Hafsteinsson ('40)
1-1 Dagur Ingi Hammer Gunnarsson ('87)

KA og Grindavík skildu jöfn í síðasta leik dagsins í A-deild Lengjubikars karla. Leikið var í Boganum á Akureyri.

Það Akureyringar sem tóku forystuna í leiknum og leiddu í hálfleik. Markið gerði Daníel Hafsteinsson sem er tiltölulega nýkominn aftur til KA eftir að hafa spilað með Helsingborg í Svíþjóð og FH í Hafnarfirði.

Staðan var 1-0 fyrir KA-menn alveg fram á 87. mínútu en þá skoraði Dagur Ingi Hammer Gunnarsson og jafnaði metin.

Þar við sat og lokatölur 1-1 og Grindvíkingar fara með stig frá Akureyri. KA er samt komið í 8-liða úrslit þar sem liðið hafnar í öðru sæti riðilsins með tíu stig en betri markatölu en HK. Grindavík hafnar í fjórða sæti riðilsins með sjö stig. Valur vinnur riðilinn og er einnig komið í 8-liða úrslitin. KA mun mæta Breiðablik í 8-liða úrslitunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner