lau 13. mars 2021 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Moyes vill kaupa Lingard
David Moyes vill kaupa J-Lingz frá Man Utd
David Moyes vill kaupa J-Lingz frá Man Utd
Mynd: Getty Images
David Moyes, stjóri West Ham á Englandi, vill kaupa Jesse Lingard af Manchester United í sumar.

Lingard gekk til liðs við West Ham á láni frá Manchester United í janúar en hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp tvö í sex leikjum til þessa.

West Ham er í gír og situr nú í 5. sæti deildarinnar með 48 stig og gerir liðið sér vonir um að ná Meistaradeildarsæti.

Man Utd ákvað að virkja klásúlu í samningnum hjá Lingard er hann fór til West Ham á láni en hann er nú samningsbundinn til 2022.

„Ég vona að við verðum í góðri stöðu í framtíðinni þannig við getum lokkað fleiri leikmenn til okkar. Við erum stór klúbbur í Lundúnum og erum með 60 þúsund manna leikvang sem verður pakkfullur í hverri viku. Þetta vinnur allt með okkur," sagði Moyes.

„Jesse vildi alltaf koma hingað. Þegar ég ræddi við hann um að koma til West Ham þá sá hann að þetta væri góður staður fyrir hann og ég held að hann sjái hvað við erum að reyna að gera hérna."

„Hann kom inn í góðan hóp. Við erum með landsliðsmenn hérna og vonandi getum við bætt við fleirum í næsta glugga. Það er markmiðið en ég vona að Jesse hafi áhuga á að vera hérna ef það er möguleiki á að fá hann,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner