Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. mars 2021 22:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Mustafi með skondið sjálfsmark
Shkodran Mustafi.
Shkodran Mustafi.
Mynd: Getty Images
Shkodran Mustafi skoraði frekar skrautlegt sjálfsmark í þýsku úrvalsdeildinni í dag.

Mustafi gekk í raðir Schalke fyrir um einum og hálfum mánuði síðan frá Arsenal. Mustafi átti ekki sérlega góðu gengi að fagna og gerði oft á tíðum slæm mistök.

Hann gerði í dag slæm mistök þegar hann kom Wolfsburg yfir með skondnu sjálfsmarki.

Hann virðist ætla að skalla boltann aftur til markvarðar síns en skallaði boltann beint í eigið mark. Þetta er svolítið lýsandi fyrir tímabil Schalke en liðið er á botni þýsku deildarinnar með aðeins tíu stig eftir 25 leiki. Wolfsburg vann 5-0 en sjálfsmark Mustafi var fyrsta mark leiksins.

Hægt er að sjá markið hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner