lau 13. mars 2021 23:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Söfnuðu fyrir veikan vin sinn og lituðu hárið bleikt
Markaskorarar dagsins, Davíð er lengst til vinstri.
Markaskorarar dagsins, Davíð er lengst til vinstri.
Mynd: Jón Örvar Arason
Keflavík vann í dag sigur í Lengjubikarnum, meðal markaskorara var Davíð Snær Jóhannsson, það er ekki til frásögu hér nema fyrir þær sakir að eftir leik birtist mynd af honum og þá sást að Davíð hafði litað hárið á sér bleikt.

Fótbolti.net fór á stúfana og upp úr krafsinu kom að í Fjölbrautaskóla Suðurnesja var góðgerðarvika og gátu einstaklingar eða hópar lofað því að gera eitthvað ákveðið ef ákveðin upphæð myndi safnast.

Safnað var fyrir félaga Davíðs sem berst við krabbamein. Tveir vinir Davíðs voru með honum í því að lita hárið á sér bleikt.

„Það var góðgerðarvika og ég og tveir félagar mínir ákváðum að henda í áheiti sem var þannig að ef safnað yrði 75 þúsund krónum þá myndum við lita hárið bleikt og eins og sést þá náðist að safna upp í þessa upphæð," sagði Davíð við Fótbolta.net.

„Góður félagi okkar og nemandi í FS er að berjast við krabbamein og söfnuðum við því fyrir hann," bætti Davíð við.

Athugasemdir
banner
banner