Norrköping 2 - 3 Häcken
1-0 S. Adegbenro ('10)
1-1 A. Jeremejeff ('22)
2-1 S. Haksabanovic ('35)
2-2 B. Traore ('45)
2-3 T. Heintz ('57)
1-0 S. Adegbenro ('10)
1-1 A. Jeremejeff ('22)
2-1 S. Haksabanovic ('35)
2-2 B. Traore ('45)
2-3 T. Heintz ('57)
Hinir bráðefnilegu Ísak Bergmann Jóhannesson og Valgeir Lunddal Friðriksson léku allan leikinn er Norrköping og Häcken mættust í stórslag.
Leikurinn var gríðarlega fjörugur og var staðan jöfn 2-2 í leikhlé. Gestirnir í BK Häcken komust yfir í síðari hálfleik og sóttu heimamenn í sig veðrið undir lokin án þess þó að takast að gera jöfnunarmark.
Valgeir lagði upp sigurmark Häcken en Ísak Bergmann lagði einnig upp fyrir Norrköping.
Oskar Tor Sverrisson kom inn af bekknum á 69. mínútu fyrir Häcken á meðan Finnur Tómas Pálmason var ónotaður varamaður hjá Norrköping.
Häcken mætir sigurliðinu úr viðureign Degerfors og Västerås.
Athugasemdir