Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. mars 2021 15:55
Ívan Guðjón Baldursson
Svíþjóð: Sveindís Jane setti tvennu í bikarnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristianstad og Djurgården fara vel af stað í sænska bikarnum með öruggum fjögurra marka sigrum.

Sveindís Jane Jónsdóttir leikur fyrir Kristianstad að láni og skoraði hún tvennu í sigri liðsins í dag.

Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari Kristianstad og leikur Sif Atladóttir einnig fyrir félagið.

Djurgården lagði þá Uppsala að velli. Guðrún Arnardóttir leikur fyrir Djurgården.

Alingsas 0 - 4 Kristianstad
0-1 Sveindís Jane Jónsdóttir ('17)
0-2 Sjálfsmark ('23)
0-3 M. Carlsson ('61)
0-4 Sveindís Jane Jónsdóttir ('78)

Djurgården 4 - 0 Uppsala
1-0 H. Dowd ('10)
2-0 H. Ekengren ('25)
3-0 R. Bloznalis ('70)
4-0 L. Motihalo ('88)
Athugasemdir
banner
banner
banner