Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 13. mars 2021 22:14
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Svona verða 8-liða úrslitin í Lengjubikar karla
Valur og KR mætast.
Valur og KR mætast.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er ljóst hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum A-deildar Lengjubikars karla. Það skýrðist í dag.

Liðin í efsta og öðru sæti í riðlunum fjórum komast í 8-liða úrslitin. Liðin sem enduðu í efsta sæti munu mæta liði sem endaði í öðru sæti.

Breiðablik, Stjarnan, Valur og Víkingur unnu riðlana og í öðru sæti lentu Fylkir, KA, Keflavík og KR.

Á fimmtudaginn hefjast 8-liða úrslitin með Reykjavíkurslag Vals og KR á Origo-vellinum. Á föstudaginn mætast Víkingur og Keflavík á Víkingsvelli og svo eru tveir leikir á laugardaginn. Stjarnan tekur á móti Fylki og á Kópavogsvelli mætast Breiðablik og KA.

Smelltu hérna til að skoða fyrirkomulagið á vefsíðu KSÍ.

8-liða úrslit:
Valur - KR
Víkingur - Keflavík
Stjarnan - Fylkir
Breiðablik - KA
Athugasemdir
banner
banner
banner