Valgeir Valgeirsson var á skotskónum fyrir varalið enska knattspyrnufélagsins Brentford í dag.
Varalið Brentford mætti Ebbsfleet, sem leikur í sjöttu efstu deild Englands.
Valgeir byrjaði á bekknum en hann kom inn á sem varamaður á 70. mínútu og var ekki lengi að láta til sín taka. Hann skoraði á 86. mínútu og kom Brentford í 5-1.
Þannig endaði leikurinn, 5-1, og spilaði Valgeir rúmlega 20 mínútur.
Valgeir er 18 ára gamall. Hann er í láni hjá Brentford frá uppeldisfélaginu HK og getur Brentford nýtt sér forkaupsrétt á Valgeiri á meðan lánssamningum stendur.
Sjá einnig:
Valgeir „gæti eiginlega ekki verið sáttari" hjá Brentford og dreymir um lokakeppnina
Athugasemdir