Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. mars 2021 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Zidane: Ég veit ekki hvað verður um Ramos
Sergio Ramos
Sergio Ramos
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid á Spáni, segist ekki vita stöðuna á samningamálunum hjá Sergio Ramos.

Ramos er 34 ára gamall og verður samningslaus í sumar en svo virðist sem enginn vilji sé hjá leikmanninum um að framlengja við Madrídinga.

Hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna sem knattspyrnumaður og allt bendir til þess að hann ætli að leita sér að nýju ævintýri en Zidane veit ekki stöðuna á spænska varnarmanninum.

„Ég vil vera hreinskilinn við ykkur og ég verð að segja að ég veit ekki hvað mun gerast með hann. Við viljum halda honum hér því hann mun alltaf vera mikilvægur leikmaður fyrir okkur og þess vegna vil ég halda honum. Þetta segi ég sem þjálfari," sagði Zidane.

„Mun Ramos spila til fertugs? Hann hefur sagt það sjálfur. Þetta er sérstakur leikmaður," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner