Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. apríl 2019 10:33
Arnar Helgi Magnússon
Byrjunarlið Tottenham og Huddersfield: Lykilmenn hvíldir - Llorente byrjar
Llorente byrjar
Llorente byrjar
Mynd: Getty Images
Tottenham leikur sinn þriðja leik á nýja leikvanginum í London nú í hádeginu þegar liðið fær Huddersfield í heimsókn.

Eins og áhugamenn um enska knattspyrnu vita að þá er lið Huddersfield fallið og mun spila í Championship að ári.

Tottenham varð fyrir áfalli þegar Harry Kane meiddist gegn Manchester City í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í vikunni og ekki er talið líklegt að hann spili meira með liðinu á leiktíðinni.

Fernando Llorente kemur inn í hans stað í byrjunarliði Tottenham. Dele Alli er ekki í leikmannahóp en hann brákaði bein í leiknum gegn City. Son er settur á bekkinn ásamt Kieran Trippier og Toby Alderweireld. Harry Winks er ekki í leikmannahópnum.

Byrjunarlið Tottenham: Lloris, Walker-Peters, Sanchez, Vertonghen, Foyth, Davies, Sissoko, Wanyama, Eriksen, Moura, Llorente
(Varamenn: Gazzaniga, Trippier, Rose, Alderweireld, Son, Marsh, Skipp)

Byrjunarlið Huddersfield: Hamer, Hadergjonaj, Kongolo, Schindler, Durm, Bacuna, Stankovic, Hogg, Lowe, Grant, Kachunga

Athugasemdir
banner
banner
banner