Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. apríl 2019 17:30
Arnar Helgi Magnússon
Keita hugsar ekki um að skora mörk
Mynd: Getty Images
Naby Keita hefur spilað vel fyrir Liverpool í síðustu leikjum en hann hefur skorað tvö mörk í síðustu tveimur leikjum sínum. Það fyrra gegn Southampton og það síðara gegn Porto í Meistaradeildinni.

Hann er ángæður með það að vera búinn að skora sitt fyrsta mark fyrir Liverpool.

„Það er alltaf skemmtilegt að skora fyrsta markið sitt fyrir nýja klúbb. Ég er mjög glaður með það," segir Keita.

Hann segir það þó ekki sitt hlutverk að skora mörkin fyrir liðið. Það séu aðrir í því .

„Það mikilvægasta fyrir mér er liðið og að spila vel. Það gengur mjög vel hjá okkur þessa dagana og þetta gæti ekki verið betra. Það tók tíma fyrir mig að skora fyrsta markið en ég er miðjumaður. Við erum með aðra í markaskoruninni. Salah, Firmino og Mane eru allir frábærir markaskorarar."

Liverpool mætir Chelsea í stórleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner