lau 13. apríl 2019 20:35
Hafliði Breiðfjörð
Mjólkurbikarinn: Hvíti riddarinn, KFR og Berserkir áfram
Jón Steinar skoraði þrjú gegn Herði..
Jón Steinar skoraði þrjú gegn Herði..
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Þremur leikjum lauk í Mjólkurbikar karla núna í kvöld, leikir sem hófust 16:00 og síðar.

Hvíti Riddarinn burstaði lið Kormáks/Hvatar að norðan með fimm mörkum gegn einu.

Sama niðurstaðan varð þar sem Hörður frá Ísafirði tapaði gegn Berserkjum en Jón Steinar Ágústsson skoraði þrennu í leiknum.

Þá vann KFR 1-0 sigur á KH en markaskorara má sjá hér að neðan.

Þegar er ljóst hverjir verða mótherjar liðanna í 2. umferð. KFR heimsækir Gróttu á Seltjarnarnesið, Berserkir mæta KÁ á Ásvöllum og Hvíti Riddarinn fær Njarðvík í heimsókn. Leikið verður á Skírdag.

Hvíti riddarinn 5 - 1 Kormákur/Hvöt
1-0 Stefnir Guðmundsson ('19)
2-0 Egill Jóhannsson ('43)
3-0 Eiríkur Þór Bjarkason ('45)
3-1 Hilmar Þór Kárason ('52)
4-1 Hlynur Rafn Rafnsson ('54)
5-1 Eiríkur Þór Bjarkason ('89)

Hörður Ísafirði 1 - 5 Berserkir
0-1 Jón Steinar Ágústsson
1-1 (markaskorara vantar)
1-2 Davíð Stefánsson
1-3 Jón Steinar Ágústsson
1-4 Andri Steinn Hauksson
1-5 Jón Steinar Ágústsson

KFR 1 - 0 KH
1-0 Przemyslaw Bielawski ('69)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner