Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   sun 13. maí 2018 22:15
Magnús Már Einarsson
Helgi Sig: Sýndum það í dag að veturinn skiptir máli
Helgi Sigurðsson.
Helgi Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
„Það var geggjað að sjá strákana gefast aldrei upp. Við vorum 2-0 undir á erfiðum útivelli þegar voru 20 mínútur en náðum samt að klára þetta. Með smá heppni hefðum við getað unnið," sagði Helgi Sigurðsson, þjálfari Fylkis, eftir 2-2 jafntefli við Íslandsmeistara Vals í kvöld.

Fylkismenn komu til baka eftir að hafa lent 2-0 undir en Helgi var hæstánægður með sína menn.

„Við komum hingað til að ná í þrjú stig. Við unnum þá tvisvar í vetur. Þið sérfræðingarnir segið að þetta séu vorleikir og liðin stilli ekki upp hinum og þessum liðum. Við sýndum það í dag að veturinn skiptir máli og að sækja í sjálfstraustið."

Lestu um leikinn: Valur 2 -  2 Fylkir

Fylkismenn spiluðu 3-5-2 í dag líkt og í 2-1 sigrinum á KA í síðasta leik.

„Við spiluðum 3-5-2 frekar mikið í fyrarvetur en lítið í fyrrasumar. Við tókum Reykjavíkurmótið í 3-5-2 og það skilaði okkur úrslitaleik. Við byrjuðum mótið í sumar í 4-3-3 en það var tóm vitleysa hjá þjálfaranum. Það hefur verið stígandi í þessu kerfi hjá okkur og við höldum ótrauðir áfram."

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner