Elías Már Ómarsson skoraði þrennu í fjörugum 4-5 sigri Excelsior gegn Heracles í hollenska boltanum í gær.
Elías hefur verið mikið á bekknum að undanförnu en fékk tækifærið í gær og nýtti það. Hann skoraði tvö í fyrri hálfleik og gerði svo sigurmark í uppbótartíma. Sigurinn skiptir litlu fyrir félagið sem fer í umspil um sæti í deildinni.
Elías er 24 ára gamall og hefur gert 6 mörk í 22 deildarleikjum á tímabilinu. Með honum í liði umferðarinnar eru fjórir leikmenn Ajax.
Lið vikunnar í Hollandi:
Markvörður: Bizot (AZ Alkmaar)
Varnarmenn: De Ligt (Ajax), Memisevic (Groningen), Blind (Ajax)
Miðjumenn: Ziyech (Ajax), Midtsjö (AZ Alkmaar), Van de Beek (Ajax), Susic (VVV-Venlo)
Sóknarmenn: Elías Már Ómarsson (Excelsior), Dalmau (Heracles), Mlapa (VVV-Venlo)
Athugasemdir