Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðfyrirliði og leikmaður Wolfsburg, er á förum frá þýska félaginu eftir fjögur tímabil hjá þýsku meisturunum.
Sara var til viðtals í Sportið í dag á Stöð 2 Sport í dag. Hún hefur verið orðuð við frönsku meistarana í Lyon í vor en ekkert hefur verið staðfest í þeim efnum.
Sara var til viðtals í Sportið í dag á Stöð 2 Sport í dag. Hún hefur verið orðuð við frönsku meistarana í Lyon í vor en ekkert hefur verið staðfest í þeim efnum.
„Það er mikill heiður að vera orðuð við Lyon og ég get sagt það að þeir (forráðamenn Lyon) hafa verið í bandi við mig síðustu tvö ár og haft mikinn áhuga,“ sagði Sara
„Þetta er eitt besta félagslið í heiminum og þetta er gríðarlegur heiður. Eins og staðan er núna get ég ekkert staðfest en vonandi kemur eitthvað í ljós á næstu vikum."
Sjá einnig:
Segja Söru Björk vera búna að semja við Lyon
Athugasemdir