Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 13. maí 2020 23:00
Aksentije Milisic
Melo heldur áfram: Chiellini er reiður því ég skallaði hann
Mynd: Getty Images
Felipe Melo, fyrrverandi leikmaður Juventus og Inter, heldur áfram að svara fyrir sig og láta Georgio Chiellini heyra það. Chiellini gaf út ævisögu á dögunum þar sem hann sagði að Melo væri skemmt epli.

Chiellini talaði einnig illa um Mario Balotelli en báðir leikmenn svöruðu strax fyrir sig og Melo er ekki hættur. Hann segir að slæmt samband þeirra tveggja hafi byrjað þegar Melo skallaði hann í leik.

„Honum er illa við mig af því að ég skallaði hann þegar við vorum að spila gegn Siena," sagði Melo á Instagram.

„Ég hef ekki talað við hann eftir það og svo skrifar hann þessa bók. Ég sagði það sem ég þurfti að segja. Fullt af hlutum gerðust hjá Juventus og ég gæti skrifað þúsund bækur um það."

„Chiellini baðst aldrei afsökunar, en það er í lagi. Svo lengi sem hann beri ábyrgð á því sem hann segir. Hann vildi bara skrifa eitthvað krassandi svo að bókin hans myndi seljast."
Athugasemdir
banner
banner
banner