Häcken 3 - 0 Eskilstuna
Sænsku meistararnir í Häcken unnu í dag 3-0 sigur á Eskilstuna í úrlslitaleik sænsku bikarkeppninnar. Leikið var á Bravida Arena, heimaelli Häcken.
Sænsku meistararnir í Häcken unnu í dag 3-0 sigur á Eskilstuna í úrlslitaleik sænsku bikarkeppninnar. Leikið var á Bravida Arena, heimaelli Häcken.
Staðan var markalaus í leikhléi en Filippa Angeldal skoraði fyrsta mark leiksins á 56. mínútu. Stina Blackstenius bætti við öðru marki Häcken á 70. mínútu og Pauline Hammarlund innsiglaði sigurinn með þriðja marki liðsins á 87. mínútu.
Diljá Ýr Zomers er leikmaður Häcken en hún var ónotaður varamaður í dag.
Diljá er nítján ára fjölhæfur leikmaður sem kom til sænsku meistaranna frá Val í vetur.
Häcken var í raun ríkjandi bikarmeistari en félagið hét áður Kopparbergs/Gautaborg.
Athugasemdir