Mikil óánægja er með frammistöðu Leiknis Ágústssonar dómara í Reykjavíkurslag Leiknis og Víkings í 1. deild karla í kvöld.
Leiknum lauk með 2-2 jafntefli en Víkingar eru sérstaklega ósáttir við frammistöðu Leiknis og rautt spjald sem hann gaf Hjalta Má Haukssyni.
Heimir Gunnlaugsson, formaður meistaraflokksráðs Víkings, lætur Leikni dómara heyra það á Twitter síðu sinni í kvöld.

,,Leiknir Ágústsson er búinn að eyðileggja leikinn. Þessi maður er mesta sorp íslenskum bolta. KSÍ til skammar ár eftir ár #vikingurnet," sagði Heimir.
Sýnt verður úr leiknum og hann krufinn í sjónvarpsþættinum Fótbolti.net á Sporttv klukkan 12:30 á morgun
Sjá einnig:
Allt á suðupunkti í Breiðholti