„Þetta er ævintýri og það er gaman að fá að taka þátt í þessu," segir Hólmar Örn Eyjólfsson, varnarmaður íslenska landsliðsins. Hólmar er í hópnum í HM í Rússlandi en hann fór ekki á EM í Frakklandi fyrir tveimur árum.
Hólmar spilaði sem hægri bakvörður þegar Ísland gerði 2-2 jafntefli við Gana á fimmtudaginn. Hólmar er vanari því að spila sem miðvörður en hann leysti hægi bakvörðinn í síðustu viku.
„Mér fannst þetta vera fínt miðað við að ég hafði ekki spilað þarna í mjög langan tíma. Þetta er mjög ólík staða miðað við hafsentinn. Þetta eru miklu meiri hlaup, allt öðruvísi návígi og meira pláss í kringum þig. Mér fannst þetta takast ágætlega."
Ísland mætir Argentínu í fyrsta leik á HM á laugardaginn.
„Við þurfum að spila upp á veikleika þeirra. Við teljum okkur vera búnir að finna veikleika. Við erum ekki bara að fókusa á Argentínu heldur líka á sjálfa okkur og hvernig við getum náð okkar besta leik."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir