Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 13. júní 2018 23:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Salah mætti á æfingu með liðsfélögunum í dag
Salah er í kapphlaupi við tímann.
Salah er í kapphlaupi við tímann.
Mynd: Getty Images
Mohamed Salah mætti á æfingu ásamt liðsfélögum sínum í egypska landsliðinu í Rússlandi í dag.

Salah er tæpur fyrir fyrsta leik Egyptalands á HM þar sem hann varð fyrir axlarmeiðslum í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Real Madrid. Fyrsti leikur Egypta á HM er gegn Úrúgvæ eftir tvo daga, en opnunarleikurinn er á morgun.

Það eru jákvæðar fréttir að Salah skuli hafa æft með liðsfélögum sínum í gær en hann hefur verið að æfa einn að undanförnu.

Þetta gefur til kynna að Salah eigi möguleika á því að spila í fyrsta leiknum gegn Úrúgvæ.

Ef hann missir hins vegar af þeim leik þá mun hann setja stefnuna á leikinn gegn Rússlandi 19. júní

Egyptaland er í riðli með Rússum, Sádí-Arabíu og Úrúgvæ.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner