Norður-Írski landsliðsmaðurinn, Craig Cathcart, hefur skrifað undri nýjan fjögurra ára samning við Watford.
Cathcart kom til Watford árið 2014 frá Blackpool. Hann hafði áður verið á lánssamningi hjá Watford frá Manchester United árið 2009.
Cathcart kom til Watford árið 2014 frá Blackpool. Hann hafði áður verið á lánssamningi hjá Watford frá Manchester United árið 2009.
Cathcart, sem varð þrítugur í febrúar, kom til Manchester United árið 2005 þá sextán ára gamall. Hjá United var Cathcart til ársins 2010 en spilaði ekki keppnisleik fyrir félagið.
Hjá Watford hefur Cathcart spilað 122 deildarleiki og skorað í þeim sjö mörk. Auk þess hefur Cathcart spilað 43 landsleiki fyrir Norður-Írland.
Athugasemdir