Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 13. júlí 2018 17:30
Magnús Már Einarsson
FIFA staðfestir að HM 2022 verður í nóvember og desember
HM styttan.
HM styttan.
Mynd: Getty Images
FIFA staðfesti í dag að HM í Katar árið 2022 byrjar 21. nóvember og lýkur 18. desember.

Áður hafði verið greint frá því að mótið myndi fara fram að vetri til þar sem hitastigið í Katar getur farið yfir 40 gráður á sumrin.

Í dag voru leikdagar staðfestir en úrslitaleikurinn sjálfur fer fram innan við viku fyrir aðfangadag.

Þetta þýðir að stærstu deildir Evrópu fara í langt frí á miðju tímabili á meðan HM fer fram.

HM 2022 verður síðasta mótið með 32 liðum en á HM 2026 verða þátttökuþjóðirnar 48 talsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner