fös 13. júlí 2018 22:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Heldur Courtois að hann spili Barcelona bolta hjá Chelsea?"
Thibaut Courtois.
Thibaut Courtois.
Mynd: Getty Images
„Þetta er 'and-fótboltalið'. Sóknarmaðurinn þeirra spilar 30 metrum frá marki. Frakkland skorar með skalla úr hornspyrnu og gerir ekkert annað en að verjast," sagði fúll markvörður Belgíu, Thibaut Courtois eftir tap gegn Frakklandi í undaúrslitum HM.

Hann tók undir með liðsfélaga sínum Eden Hazard sem var ekki hrifinn af leikstíl franska liðsins.

Antoine Griezmann, sóknarmanni Frakklandi, gæti ekki verið meira sama um það sem Hazard og Courtois hafa að segja. Hann ákvað líka að skjóta á tvímenningana sem spila fyrir Chelsea á Englandi.

„Heldur Thibaut Courtois að hann spili Barcelona fótbolta hjá Chelsea?" sagði Griezmann við blaðamenn í dag.

„Ég vil fá aðra stjörnu á frönsku landsliðstreyjuna, mér er sama hvernig við förum að því," sagði Griezmann enn fremur.

Frakkland spilar við Króatíu í úrslitaleik á sunnudaginn.
Athugasemdir
banner
banner