Xherdan Shaqiri, kantmaður Stoke, er væntanlegur í læknisskoðun hjá Liverpool í dag en Liverpool Echo greinir frá þessu.
Liverpool hefur virkjað 13,5 milljóna punda riftunarverð í samningi leikmannsins.
Svissneski landsliðsmaðurinn kom til Stoke árið 2015 eftir að hafa áður leikið með Inter og Bayern Munchen.
Á síðasta tímabili skoraði Shaqiri átta mörk í 38 leikjum þegar Stoke féll.
Ef ekkert óvænt kemur upp á verður Shaqiri þriðji leikmaðurinn sem Liverpool fær í sumar á eftir Fabinho og Naby Keita.
Athugasemdir