Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 13. júlí 2019 08:00
Oddur Stefánsson
Ian Wright: Skammastu þín Koscielny
Mynd: Getty Images
Arsenal goðsögnin Ian Wright telur Laurent Koscielny veri að eyðileggja orðspor sitt með því að neita að fara með liðinu í æfingarferð.

Reiknað var með að hinn 33 ára gamli miðvörður myndi fara með Arsenal til Ameríku en félagið tilkynnti skyndilega að Koscielny myndi ekki fara með í ferðina.

Ian Wright tjáði sig um málið á Youtube reikningi sínum.

„Fyrir fyrirliðann okkar að neita að fara eftir sinna erfiðum störfum í níu ár. Að neita að fara er eitthvað sem ég botna ekki í. Laurent hvað eru ráðgjafar þínir að segja við þig?"

Laurent Koscielny hefur verið í Arsenal hvað lengst af á sínum ferli og ákvað skyndilega að það væri komið gott og bað um að fara frítt frá félaginu.


Athugasemdir
banner
banner
banner