Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
banner
   lau 13. júlí 2019 23:58
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Rúrik skoraði þrennu í fyrri hálfleik
Rúrik Gíslason skoraði þrennu fyrir Sandhausen
Rúrik Gíslason skoraði þrennu fyrir Sandhausen
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúrik Gíslason, leikmaður Sandhausen í Þýskalandi, skoraði þrennu er lið hans vann 4-3 sigur á Sonnenhauf í æfingaleik í dag.

Íslenski landsliðsmaðurinn fer undirbúningstímabilið gríðarlega vel af stað en hann skoraði einnig fyrir liðið á dögunum í 1-0 sigri á Nancy.

Hann var aftur á ferðinni í dag en gerði gott betur. Hann skoraði þrennu á átján mínútum í fyrri hálfleik. Fyrsta markið kom á 15. mínútu, annað á 24. mínútu og þriðja markið á 33. mínútu.

Sandhausen er í næst efstu deild í Þýskalandi.

Öll mörkin hans má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner