Heimild: Sky Sports
Kieran Trippier varnarmaður Tottenham er sagður ofarlega á lista Bayern Munich.
Bayern er að leita að auka kost í bakvarðarstöðu sína en vilja þó ekki hafa of dýran leikmann á bekknum.
Trippier hefur verið orðaður út um allan heim eins og Juventus, Manchester United, Atletico Madrid og sérstaklega Napoli þar sem fjölskylda Trippier sást ferðast um Napolí.
Bayern eru einnig á eftir þýska bakverðinum Benjamin Henrichs frá Monaco sem getur spilað bæði í hægri og vinstri bakverði.
Athugasemdir