Manchester United og Perth Glory mættust í æfingarleik sem hófst klukkan 11 á íslenskum tíma.
Solskjaer stillti upp ungu liði í fyrri hálfleik þar sem nýji maðurinn Daniel James byrjaði.
Paul Pogba, Marcus Rashford, Aaron Wan Bissaka ásamt fleirum komu inn á í hálfleik.
Rashford opnaði markareikning United eftir 60 mínútur með skemmtilegum undirbúning frá Paul Pogba.
James Garner sem er aðeins 18 ára tvöfaldaði forrustu United þegar lítið var eftir af leiknum og loka niðurstaðan er því 0 - 2 fyrir United.
Næsti leikur United á undirbúningstímabilinu er gegn Leeds 17. júlí.
Athugasemdir