Framtíð Mesut Özil hjá Arsenal er í mikilli óvissu en hann var hvergi sjáanlegur þegar liðið tapaði gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær.
Özil er í frystikistunni hjá Arsenal en hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið. Hann er launahæsti leikmaður í sögu félagsins.
Mikel Arteta var spurður út í stöðu Özil eftir tapið gegnum Tottenham.

„Staða hans er óbreytt frá því fyrir viku eða tveimur. Og við höfum sagt að við stýrum þessu innan okkar félags," sagði Arteta.
Þegar hann var beðinn um að útskýra orð sín betur svaraði hann:
„Þetta þýðir að ég hef ekkert að segja."
Athugasemdir