Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
Ómar Ingi: Eðlilega verður róðurinn þyngri
Siggi Höskulds: Áttum að skora miklu fleiri mörk
Mikael: Ef menn vilja vera áfram í KFA þurfa menn að horfa á þennan leik
Eyþór: Talað um báða titlana frá fyrsta samtali
   þri 13. júlí 2021 21:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðrún Jóna: Það skemmtilegasta sem ég geri
Þorleifur Óskarsson og Guðrún Jóna, þjálfarar Hauka.
Þorleifur Óskarsson og Guðrún Jóna, þjálfarar Hauka.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég hugsa að áhorfendur hafi alla vega skemmt sér, sérstaklega hér í lokin," sagði Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, þjálfari Hauka, eftir dramatískt jafntefli gegn nágrönnunum í FH í Lengjudeild kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: FH 1 -  1 Haukar

„Við reyndum allt. Við vorum undir í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Við áttum svolítið undir högg að sækja, en við hættum aldrei. Það hefði verið ansi ljúft að stela þessu í lokin."

FH var sterkari aðilinn heilt yfir en Haukar hefðu getað stolið þremur stigum undir lokin.

„Mér fannst þær vera betri í fyrri hálfleik. Leikurinn jafnaðist í seinni hálfleik og svo tókum við yfir síðustu 15 mínúturnar. FH er með hörkulið en við erum líka hörkulið."

„Ég er aldrei sátt með stig, ég vil alltaf sigur. En úr því sem komið var, þá get ég ekki annað en verið sátt með stigið."

Þetta var Hafnarfjarðarslagur; það eru sérstakir leikir.

„Markmiðið er að fara í hvern einasta leik, reyna að ná í þrjú stig og sjá hvert það skilar okkur í lokin... eins og þú sást er þetta miklu meira en fótboltaleikur. Það eru miklar tilfinningar, þetta er Hafnarfjarðarslagur og þetta eru geggjaðir leikir. Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri, að spila þessa leiki."

Hægt er að sjá allt viðtalið hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner