Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 13. júlí 2021 09:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Með magnað hugarfar þessi strákur og ætlar sér að koma sterkari til baka"
Rúnar Þór
Rúnar Þór
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Þór Sigurgeirsson glímir við nárameiðsli sem urðu til þess að hann þarf að bíða aðeins með að verða atvinnumaður í knattspyrnu. Hann var við það að ganga í raðir sænska félagsins Sirius en stóðst ekki læknisskoðun vegna meiðslanna.

Sjá einnig:
Rúnar Þór stóðst ekki læknisskoðun hjá Sirius - „Þetta er högg"

Eysteinn Húni Hauksson, annar af þjálfurum Keflavíkur, var spurður út í Rúnar í viðtali eftir leikinn gegn KR í gær.

Lestu um leikinn: KR 1 - 0 Keflavík

„Það eru einhverjar vikur í hann. Þetta er náttúrulega óheppilegt fyrir hann en hann er búinn að sýna strax að hann er með magnað hugarfar þessi strákur og hann ætlar sér bara að koma sér sterkari til baka þegar það er í boði. Við verðum bara að bíða þolinmóðir eftir því," sagði Eysteinn.

Viðtalið í heild má sjá hér að neðan.
Eysteinn: Verðum að þora að gera hlutina
Athugasemdir
banner
banner